Kemur á óvart að það séu ekki neinar stórar fréttir á þessu heimili, dömurnar mínar eru lasnar, Anna Lísa er með gubbupest og Bryndís með gubbupest, kvef og neitar að borða og ég veit ekki hvað og hvað, hún er ekki búin að borða síðan á sunnudaginn nema svona sýnishorn af mat nema í gærkveldi borðaði hún smá grjónagraut og okkur til mikillar ánægju gubbaði hún honum öllum upp í nótt, svo mér telst að þetta sé fjórða nóttin sem við sofum eitthvað annsi lítið, hún greyjið vaknar annað slagið alla nóttina og grætur og bröltir eða þá ælir, við ætlum að kíkja með hana til læknis á eftir og vita hvort hann kann einhver töfraráð fyrir okkur svefnvana foreldrana.Anna Lísa er eiginlega batnað, hún er búin að fá sér að borða og líður ágætlega eftir það svo ég reikna frekar með að hún fari í skólan á morgun.
‘Eg þurfti að fresta öllum plönunum mínum í dag, áttir að vera að byrja í nýjum hóp í Hvíta bandinu, nú á ég að vera tvisvar í viku á fimmtudögum í listþerepíu(sem ég veit ekki alveg hvað er)og á mánudögum í venjulegum hóp, svo ég ætla að taka þetta með trukki núna því sálartetrið er ekki upp á það besta þessa dagana, svona sambland af mörgu held ég að sé að angra mig, allt frá veðrinu til veikinda krakkana, langar helst að skríða undir sæng og ekki hreyfa mig þaðan, hef áhyggjur af öllu, á erfitt með að sofna fyrir áhyggjum af lífinu, peningum, krökkunum, hvort ég fái einhvern til að passa Bibbuna mína á meðan ég er að vinna í mínum málum svo börnin mín geti átt glaða mömmu, get ekki endalaust gengið á Davíð að vera heima það að sjálfsögðu bitnar á hans vinnu og hvenær ætli hans yfirmenn fái nóg af hann þurfi alltaf að skreppa heim til að passa svo ég geti dröslast til geðlæknis og öllu öðru litlu eða stóru. Nóg um það, búin að pústa smá.
Svo átti ég líka að vera á tölvunámskeiðinu í dag en kemst nátturlega ekki vegna veikinda, fór heldur ekkiá þriðjudaginn vona bara að ég sé ekki búin að missa mjög mikið úr, verð bjartsýn á það ég læt sem ég ná því upp í næstu viku.
Nóg af kvarti og kveini, Bryndís loksins sofnuð, sófinn kallar svo bless.